25.06.2008 00:05:44 / ma-88
Loksins eru komnar nýjar myndir frá 14.-16. júní. Því miður er ekki hægt að setja þær inn á síðuna heldur gefum við hér með upp slóð þar sem þær er að finna
http://album.123.is/?aid=102742
»
18.06.2008 12:31:37 / ma-88
Þeir sem voru svo fyrirhyggjusamir að taka myndir þessa skemmtilegu daga mega endilega gefa sig fram við
agusta@klettas.is . Það væri gaman að setja inn nokkrar myndir af þessum skemmtilegu dögum. Endilega kvittið svo í gestabókina og látið í ykkur heyra.
»
17.06.2008 11:30:42 / ma-88
Þá er frábær skemmtun að baki og hægt að fara hlakka til næstu endurfunda eftir aðeins 5 ár.
Mikil gleði var í Höllinni í gær, sungið og dansað. Unnsteinn átti comeback ársins og tróð upp án nokkurs undirbúnings fyrir hönd okkar 20 ára stúdenta. Hann tók lagið eins og sönnum skemmtikrafti sæmir og margar konur í salnum fengu í hnén

Já, allar unnu þær Unna.
Að lokum minnum við alla sem eiga eftir að gera upp að ganga frá því strax. Þeir sem höfðu greitt en gátu ekki komið geta sent athugasemdir á agusta@klettas.is og fengið endurgreitt.
»
14.06.2008 11:25:44 / ma-88
Jæja þá er stóra stundin runnin upp og mikil gleði og skemmtun framundan. Hér eru nokkur minnisatriði fyrir næstu daga.
Bekkjarpartý í kvöld hjá öllum bekkjum-gangið hægt um gleðinnar dyr til að njóta morgundagsins sem best.


Mæting í óvissuferð er í
Stefánslundi kl. 13:30 ef einhver missir af hópnum getur hann fengið upp staðsetningu hans í
síma 660-1772, 867-3483 eða 898-6202.


Gott er að vera með
skotsilfur í óvissuferðinni. Boðið verður upp á léttar veitingar en sumir eru þorstlátari en aðrir


Við munum útbúa
makamiða fyrir þá sem vilja bjóða mökum sínum að kíkja við þann 15. júní á Kaffi Akureyri þegar hefðbundnu borðhaldi er lokið. Þessa miða er hægt að nálgast í óvissuferðinni fyrr um daginn

|
»
12.06.2008 23:10:47 / ma-88
Vorum að setja inn nýjar og óborganlegar myndir úr F-inu en þær verða væntanlega síðustu myndirnar í þessari skemmtilegu myndasyrpu sem okkur hefur tekist að safna saman. Frábær heimild um þá gömlu góðu daga....
Þátttökulistinn lengist með hverjum deginum og nú hafa um 60 manns boðað komu sína og enn vitum við af nokkrum sem eiga eftir að bætast á listann -- sem sagt frábær þátttaka
Minnum þá sem ætla í Höllina á gömlu góðu stúdentshúfuna
»
11.06.2008 23:07:31 / ma-88
»
10.06.2008 19:38:07 / ma-88
Minnum eftirlegukindur á að greiða sem allra fyrst-nauðsynlegt til að vita hversu mörgum lömbum þarf að slátra ofan í árganginn.
Þátttakan lofar góðu og nú er talan komin upp í 41. Við vitum af nokkuð mörgum sem hafa gefið loforð um að mæta og hvetjum þá til að gera hreint fyrir sínum dyrum eða greiða ella.
Ekki verður hægt að tilkynna hver hreppir tilnefningu um skilvísasta bekkinn fyrr en allar greiðslur hafa borist - þannig að nú er um að gera að skipta sér af náunganum minna hann á að greiða.
»
08.06.2008 23:17:44 / ma-88
Nú er hafin æsispennandi keppni á milli bekkjanna. F-bekkurinn náði titlinum um gáfaðasta bekkinn en hver hreppir verðlaun um skilvísasta bekkinn?
Koma svo - upp með keppnisskapið. Við bendum á að auðveldlega er hægt svindla og greiða fyrir aðra (sá hinn sami gæti líka hlotið nafnbótina - efnaðasti MA-ingurinn '88 árið 200
.
»
06.06.2008 18:18:16 / ma-88
Nýjar,gamlar myndir komnar inn á síðuna frá Guffu, m.a. frá 50 ára hátíðarhöldum ÍMA. Frímerkið á enni Snorra er tilkomið vegna þess að senda átti hann rakleiðis heim í pósti einhverra hluta vegna! Einnig eru komnar nýjar myndir úr T-inu frá Stefáni
Muna svo að borga.
»
06.06.2008 09:26:55 / ma-88
Við lýsum hér með eftir manni
Ara Gunnari Óskarssyni 201172-5359 sem greitt hefur inn á reikninginn okkar. Ekki vitum við til þess að hann hafi verið í árgangnum enda ungur maður með afbrigðum. Spurt er fyrir hvern í árgangnum greiddi þessi maður? Er þetta kannski dreifbýlisstyrkurinn eða? Vinsamlegast sendið línu á
agusta@klettas.is og látið vita hvernig á þessu stendur.
Um leið viljum við minna ykkur á að greiða sem allra fyrst inn á reikninginn okkar sem er
565-14-608118 kt.130768-4589-og muna að tilgreina rétt nafn með greiðslunni eða þið gætuð átt á hættu að lýst verður eftir ykkur eða aðstandendum með formlegum hætti hér á síðunni
Að lokum er vert að benda á þá staðreynd að F-bekkur hlaut flest atkvæði í skoðanakönnuninni og telst því sá bekkur sem gæddur er mestu gáfunum. Kemur varla á óvart!
»
04.06.2008 15:53:29 / ma-88
Endanleg dagskrá hefur litið dagsins ljós og má finna nánari upplýsingar hér á síðunni til hliðar. Jafnframt munu verða sendir tölvupóstar á alla í árgangnum til að tryggja að allir fái upplýsingarnar.
Munið að greiða hratt og vel og spennandi verður að fylgjast með þátttökulistanum stækka á næstu dögum. Allur pakkinn kostar 6500 kr. sem má teljast billegt í dýrtíðinni.
»
02.06.2008 21:51:02 / ma-88
Hæ og hó
Erum að leggja lokahönd á skipulagið þann 15.júní og kostnað þar að lútandi. Verður vonandi klappað og klárt á morgun. Sendum þá uppýsingar um reikningsnúmer sem hægt verður að leggja inn á til að staðfesta endanlega þátttöku.
Það upplýsist hér með að allt lítur út fyrir frábæra þátttöku því að meðaltali hafa 10-14 úr hverjum bekk boðað komu sína. Við gerum því ráð fyrir um 70-80 manns í heildina. Þetta skýrist þó betur í lok vikunnar þegar fólk staðfestir endanlega þátttöku með innlögn á reikning árgangsins. Munið að makar eru að sjálfsögðu velkomnir og því gæti fjölgað enn í hópnum.
Þangað til verið dugleg að bóka ykkur í Höllina þann 16. júní og fylgist með fréttum á síðunni á næstu dögum.
Knús
Nemmdinn
»
30.05.2008 10:44:20 / ma-88
Í þessu var verið að bæta við nýjum myndum frá Önnu hans Unna. Þökkum henni kærlega fyrir sendinguna og ekki úr vegi að spyrja þessarar skemmtilegu spurningar í leiðinni : Ann Anna Unna enn?
»
27.05.2008 01:08:30 / ma-88
Sæl öll
Ítrekum hér með kaffihúsafundarboðið þriðjudaginn 27.maí bæði norðan og sunnan heiða kl. 17:30, vonandi sjá flestir sér fært að kíkja aðeins við og kynda upp stemmninguna.
Síðan var Sigrún nokkur Kristjánsdóttir að draga fram í dagsljósið mikið af gömlum myndum og eru þær komnar inn á síðuna undir myndasöfn/falinn fjársjóður formanns-ótrúlegar myndir en sannar
»
21.05.2008 11:57:41 / ma-88
Nú eru netföng flestra í árgangnum komin inn á síðuna hjá okkur. Þó vantar nokkur til viðbótar aðallega hjá A og B. bekknum.
Vinsamlegast sendið okkur póst á
agusta@klettas.is ef þið sjáið ykkur ekki á listunum og einnig ef þið sjáið villur í skráningunni.
»
Síður:
1 2